Ræðir við Arsenal og Liverpool

James Milner í leik með Manchester City.
James Milner í leik með Manchester City. AFP

James Milner, leikmaður Manchester City og enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur rætt við bæði Arsenal og Liverpool, samkvæmt heimildum Sky Sports.

Samningur Milners við City rennur út í sumar en hann er 29 ára gamall og hefur leikið með félaginu undanfarin fimm ár og tvívegis orðið enskur meistari með því. Áður lék hann með Aston Villa, Newcastle, Leeds og Swindon.

Sagt er að Milner, sem á 53 landsleiki að baki, taki ekki ákvörðun fyrr en eftir leiki Englendinga við Íra og Slóvena 7. og 14. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert