Chelsea nálgast Arda Turan

Arda Turan.
Arda Turan. AFP

Tyrkneski landsliðsmaðurinn Arda Turan hefur gert Atlético Madrid ljóst að hann vilji yfirgefa félagið í sumar og staðfesti á Twitter-síðu sinni að umboðsmaðurinn hans væri í viðræðum við nokkur evrópsk stórlið.

Samkvæmt breskum fréttamiðlum, þar á meðal The Independent, hefur Turan mestan áhuga á að leika undir stjórn José Mourinho hjá Chelsea og að leikmaðurinn hafi þegar samið fyrirframsamning við Chelsea. Þá er ekkert eftir nema fyrir Atlético Madrid og Chelsea að semja um upphæð fyrir leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert