Playboy-kanína kýldi Cole þrisvar í andlitið

Ashley Cole var í smá veseni í vikunni.
Ashley Cole var í smá veseni í vikunni. AFP

Breska Playboy-kanínan, Carla Howe, kýldi Ashley Cole, leikmann Roma á Ítalíu, þrisvar í andlitið á skemmtistað í vikunni, en Sun greinir frá þessu í ítarlegu viðtali við Howe í dag.

Cole, sem hefur gengið heldur illa að finna sig hjá Roma frá því hann yfirgaf Chelsea, fór út að skemmta sér með vinum sínum á mánudagskvöldið á skemmtistaðnum „Tramp“, en kvöldið endaði þó heldur illa hjá kappanum.

Þessi fyrrum leikmaður Arsenal reifst við Howe um morguninn er verið var að loka staðnum, en það endaði með þeim afleiðingum að Howe kýldi Cole þrisvar í andlitið.

Hún var afar ósátt með hegðun Cole, en hún ræddi við Sun um atvikið. Þess má til gamans geta að Cole var að rugla reytum með systur Howe fyrir nokkrum árum síðan.

„Ég kýldi hann þrisvar sinnum með hægri hendi og það fast. Ashley elti mig inn á VIP-svæðið á staðnum og byrjaði að rífast við mig,“ sagði Howe.

„Mér var vísað út af staðnum af öryggisvörðum, en vinur minn sagði mér að Ashley gat ekki talað það sem eftir var af kvöldinu. Hann átti þetta skilið því hann heldur að hann geti komið fram við konur eins og skít,“ sagði Howe að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert