Valencia borgaði 28 milljónir evra fyrir Negredo

Alvaro Negredo í leik með Valencia.
Alvaro Negredo í leik með Valencia. AFP

Spænska úrvalsdeildarliðið, Valencia, staðfesti í dag kaup á framherjanum knáa, Alvaro Negredo, en hann kemur frá Manchester City. Valencia borgar um 28 milljónir evra fyrir þjónustu hans.

Negredo, sem er 29 ára gamall, gekk til liðs við Man City árið 2013 fyrir þá 23 milljónir evra, en honum gekk illa að finna sig hjá enska liðinu og var því lánaður eftir einungis eitt ár.

Hann var lánaður til Valencia þar sem hann gerði 6 mörk í 33 leikjum og var afar mikilvægur liðinu, en Valencia ákvað að nýta sér forkaupsrétt á honum og keypti hann því fyrir 28 milljónir evra.

Negredo á að baki 21 leik fyrir spænska landsliðið, en hann hefur gert 10 mörk í þeim leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert