Borini á leiðinni í Lazio?

Fabio Borini í leik meðLiverpool gegn Sunderland þar sem hann …
Fabio Borini í leik meðLiverpool gegn Sunderland þar sem hann var á láni leiktíðina 2013/2014. mbl.is / Ian MacNicol

Fram kemur í frétt í Gazzetta dello Sport í dag ítalska liðið Lazio hafi áhuga á að tryggja sér þjónustu ítalska framherjans Fabio Borini leikmanns Liverpool. Talið er að Borini gæti jafnvel verið orðinn leikmaður Lazio á næstu klukkutímunum.  

Heimildir Gazzetta dello Sport herma að Stefano Pioli hafi haft samband við Borini nýverið í þeim tilgangi að sannfæra hann um að færa sig um set til Rómarborgar og spila með Lazio. Það ku hafa borið tilætlaðan árangur hjá Pioli og nú þurfi félögin einungis að komast að samkomulagi um kaupverð.

Lazio hefur áhuga á því að fá Borini lánaðan í eitt tímabil og ganga svo frá endanlegum félagaskiptum næsta sumar og greiða þá fyrir hann eitthvað í kringum sjö milljónir evra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert