Alderweireld á leið í Tottenham

Toby Alderweireld í baráttunni við Frakkann Paul-Georges Ntep í vináttulandsleik …
Toby Alderweireld í baráttunni við Frakkann Paul-Georges Ntep í vináttulandsleik þjóðanna í júní. AFP

Belgíski varnarmaðurinn Toby Alderweireld er á leið í Tottenham samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastöðvarinnar.

Alderweireld sem var á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð frá Atlético Madrid er sagður vera búinn að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu.

Tottenham vill klára málið sem fyrst þrátt fyrir að Southampton sé að íhuga lagalegar aðgerðir vegna málsins

Hinn 26 ára gamli Alderweireld er einnig búinn að semja um kaup og kjör við Tottenham en stjórnarformaður félagsins, Daniel Levy, var um helgina í Madrid og afgreiddi málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert