Ameobi verður samherji Arons Einars

Sammy Ameobi skorar fyrir Newcastle.
Sammy Ameobi skorar fyrir Newcastle. AFP

Sammy Ameobi verður samherji landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar hjá enska B-deildarliðinu Cardiff á komandi leiktíð.

Cardiff staðfesti í dag að það hafi fengið Ameobi að láni frá Newcastle og mun hann spila með velska liðinu út tímabilið. Hann er 23 ára gamall sem verið hefur á mála hjá Newcastle frá unga aldri. Hann lék með yngri liðum Newcastle og fékk tækifæri með aðalliðinu árið 2011. Hann var í láni hjá Middlesbrough árið 2013 en sneri aftur til Newcastle og lék með því á síðustu leiktíð.

Ameobi, sem er sóknarmaður, hefur spilað 54 leiki með Newcastle og skorað í þeim tvö mörk sem litu dagsins ljós gegn Tottenham og Hull á síðustu leiktíð.

Ameobi lék tvo leiki með U20 ára landsliði Nígeríu og á fimm leiki að baki með U21 ára liði Englendinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert