Balotelli í leyfi hjá Liverpool

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Mario Balotelli mun ekki snúa strax til æfinga hjá Liverpool. Ástæðan fyrir því er sú að faðir hans er nýlátinn.

Kappinn átti að mæta til æfinga með liðsfélögum sínum en var ekki á staðnum samkvæmt fyrstu fréttum sem reyndust réttar.

Foreldrar Balotelli eru frá Gana en fluttust til Ítalíu, Palermo nánar tiltekið, þar sem kappinn fæddist. Hann ólst hins vegar upp hjá Balotelli-fjölskyldunni í Brescia frá tveggja ára aldri og var það faðir hans þar sem lést.

Liverpool mun fara til Ástralíu í æfingaferð sína um helgina og mun Balotelli væntalega hitta hópinn þar. 

Balotelli gekk í raðir Liverpool frá AC Milan síðasta sumar á 16 milljónir punda en átti erfitt tímabil og skoraði aðeins fjögur mörk. Þar af aðeins eitt í ensku úrvalsdeildinni og hefur verið orðar að framherjinn sé að fara frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert