Rodgers mun láta Milner spila á miðjunni

James Milner við undirskriftinaí gær.
James Milner við undirskriftinaí gær. Heimasíða Liverpool

James Milner segir eina ástæðuna fyrir því að hann valdi að ganga í raðir Liverpool vera þá að Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool sér hann fyrir sér spila á miðjunni hjá liðinu.

„Ég hef verið mjög heppinn að spila fyrir stór félög á mínum ferli hingað til og þetta er enn eitt félagið. Þetta er frábær áskorun fyrir mig. Ég vil spila fótbolta og spila meira á miðjunni ef ég get, og þar sér stjórinn mig spila,“ sagði Milner við heimasíðu Liverpool.

Milner talaði einnig við forráðamenn Manchester City en leist betur á það sem Liverpool hafði upp á að bjóða.

„Ég taldi þetta vera rétt skref fyrir mig og að ég myndi vonandi fá meiri spiltíma og vera hluti af einhverju einstöku,“ sagði Milner.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert