Veðjar á að Benteke verði kyrr

Christian Benteke.
Christian Benteke. AFP

Tim Sherwood knattspyrnustjóri Aston Villa er svo viss um að framherjinn Christian Benteke verði um kyrrt hjá félaginu, þó hann sé sterklega orðaður við Liverpool, að hann er búinn að veðja um það við fréttamann Sky Sports.

Sherwood er nýbúinn að vinna veðmál við íþróttafréttamanninn Pete Colley sem var viss um að Aston Villa yrði komið í hendur nýrra eigenda fyrir 6. júlí. Sherwood veðjaði við hann um 100 pund og er þeirri upphæð ríkari eftir að ekkert gerðist í eignarhaldi félagsins fyrir þann tíma.

Nú er nýtt veðmál komið í gangi á milli þeirra um hvort Benteke verði enn í röðum Aston Villa þegar félagaskiptaglugganum verður lokað í lok ágúst.

„Já, ég legg önnur 100 pund undir um að hann verði hérna áfram. Sjáið til, við viljum hafa Christian áfram, við viljum halda okkar bestu leikmönnum og Christian er svo sannarlega einn þeirra," sagði Sherwood við Sky Sports en Aston Villa sækir nýliða Bournemouth heim í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar 8. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert