Chelsea tilbúið að bjóða 34 milljónir í Stones

John Stones á ferðinni í grannaslagnum við Liverpool.
John Stones á ferðinni í grannaslagnum við Liverpool. AFP

Samkvæmt enska fréttamiðlinum Telegraph hefur Chelsea mikinn áhuga á John Stones, leikmanni Everton, og gæti verið tilbúið að bjóða 34 milljónir punda í varnarmanninn unga.

Chelsea hefur nú þegar boðið 26 milljónir punda í Stones en reiknað er með því að tilboðinu verði hafnað Everton sem er ekki tilbúið að selja Stones, sem er 21 árs gamall. Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, hefur látið í ljós að hann vilji halda leikmanninum og segir að félagið hafi sent Chelsea bréf þar sem Chelsea var tilkynnt að Stones væri ekki til sölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert