Ljóstraði Depay upp leyndarmáli United?

Er sóknarmaður að ganga í raðir United á næstu dögum?
Er sóknarmaður að ganga í raðir United á næstu dögum? AFP

Var Memp­his Depay að ljóstra því upp hvaða sóknarmann Manchester United er að krækja í? Síðustu daga hefur verið fjallað um að United sé á eftir ónefndum framherja en Louis van Gaal, knattspyrnustjóri félagsins, hefur ekki viljað gefa upp neitt nafn í því samhengi.

Depay birti mynd af sér og sóknarmanni Everton, Romelu Lukaku, á instagram. Undir myndina skrifaði Depay: „See you soon B,“ sem við gætum þýtt sem „sjáumst fljótlega.“

United er að leita að sóknarmanni en Radamel Falcao gekk til liðs við Chelsea og Robin van Perseie yfirgaf England og er orðinn leikmaður Fener­bache í Tyrklandi. 

Hér að neðan má sjá myndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert