Sterling fer hamförum

Raheem Sterling í búningi Manchester City.
Raheem Sterling í búningi Manchester City. AFP

Manchester City rústaði úrvalsliði Víetnam í Hanoi þar í landi í dag, 8:1. Raheem Sterling fór á kostum og skoraði tvö marka City-manna í leiknum.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var 4:0. Al­eks­and­ar Kol­arov og David Silva skoruðu sitt markið hvor og áðurnefndur Sterling skoraði bæði mörk sín í fyrri hálfleik.

Í síðari hálfleik bættu City-menn fjórum mörkum við. David Silva og Aleksandar Kolarov bættu við mörk sín frá því í fyrri hálfleiknum og Marcos Lopez og José Ángel Pozo skoruðu sitt markið hvor. Heimamenn klóruðu í bakkann þegar Nguyễn Văn Quyết minnkaði muninn í 8:1 í uppbótartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert