Aftur til Spánar eftir ár hjá Chelsea

Jordon Ibe í baráttu við Filipe Luis í leik Chelsea …
Jordon Ibe í baráttu við Filipe Luis í leik Chelsea og Liverpool. AFP

Filipe Luis hefur snúið aftur til Atlético Madrid á Spáni eftir eins árs dvöl hjá Englandsmeisturum Chelsea.

Hinn 29 ára gamli bakvörður náði sér ekki á strik hjá þeim bláklæddu og spilaði 26 leiki, en var orðaður við brottför til Spánar á ný. Fyrst var talið að hann yrði lánaður til síns gamla félags, en nú er ljóst að hann er endanlega genginn í raðir þeirra röndóttu á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert