Carragher þakkar Arnari kærlega fyrir

Jamie Carragher.
Jamie Carragher. AFP

Arnar Páll Rúnarsson, stuðningsmaður Liverpool á Englandi, deildi á samskiptavef Twitter í kvöld samantekt af öllum þeim mörkum sem Jamie Carragher, fyrrum leikmaður liðsins, tókst að skora fyrir félagið, en hann átti þó ekki von á viðbrögðunum sem hann fékk.

Carragher skoraði fjögur mörk í treyju Liverpool, en á ferlinum tókst honum þó einnig að gera átta sjálfsmörk.

Hann var framan af varafyrirliði Liverpool áður en hann lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum árum, en hann er sparkspekingur hjá Sky í dag.

Arnar Páll, sem er dyggur stuðningsmaður Liverpool, deildi samantekt af öllum fjórum mörkum varnarmannsins, en myndbandið er einungis 53 sekúndur. Carragher svaraði Arnari á Twitter og þakkaði honum kærlega fyrir að deila myndbandinu. Hægt er að sjá Twitter-færsluna hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert