Vill að Rooney líkist erkifjendunum meira

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur skorað á Wayne Rooney að verða líkari Sergio Agüero, framherja erkifjendanna í Manchester City, á komandi tímabili.

Reiknað er með að Rooney fái nýtt hlutverk á tímabilinu að vera í fremstu víglínu liðsins og van Gaal vill að hann taki Argentínumanninn hjá City sér til fyrirmyndar í breyttu hlutverki.

Rooney var mest notaður á miðjunni á síðustu tímabili, en var markahæsti leikmaður liðsins með tólf mörk. Agüero skoraði 26 fyrir City, en Rooney hefur eki skorað yfir 20 mörk síðan tímabilið 2011-2012, en þá skoraði hann 27 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert