Ætti að hugsa um mataræðið hjá kallinum

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur svarað Montserrat Seara, eiginkonu Rafa Benítez hjá Real Madrid, fullum hálsi en eins og mbl.is greindi frá í gær segir hún eiginmann sinn hafa þurft að hreinsa upp draslið eftir Mourinho hvað eftir annað.

Þeir Mourinho og Benítez eiga það sameiginlegt að hafa stýrt Chelsea, Inter og Real Madríd, en Mourinho hefur ávallt verið fyrri til hjá félögunum.

„Hún svo svolítið áttavilt greinilega. Hann tók bara við Inter á eftir mér og var búinn að eyðileggja eitt besta lið Evrópu á einungis sex mánuðum. Ef hún tæki mataræðið hjá kallinum betur í gegn, ætti hún ekki að hafa neinn tíma til að tala við mig,“ lét Mourinho hafa eftir sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert