Óvissi afmælisstrákurinn samdi við Newcastle

Chancel Mbemba er kominn til Newcastle.
Chancel Mbemba er kominn til Newcastle. Heimasíða Newcastle

Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United staðfesti í dag komu Chancel Mbemba til félagsins, en hann kemur frá Anderlecht í Belgíu.

Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um félagaskipti Mbemba, en það virðist enginn vita það með vissu hvað leikmaðurinn er gamall.

Hann virðist eiga fjóra afmælisdaga, en hann er fæddur 8. ágúst árið 1994 samkvæmt skrá Anderlecht og var sú skráning notuð er hann átti að taka þátt með Kongó í undankeppni HM sem fór fram í Brasilíu.

Þegar hann var notaður í undankeppni fyrir Afríkukeppnina fyrir þremur árum þá var afmælisdagur hans skráður þann 30. nóvember 1991. Samkvæmt félgasliðum hans í Kongó er afmælisdagur hans 8. ágúst 1988.

Það er þá vert að taka það fram að Mbemba heldur því sjálfur fram að hann sé fæddur árið 1990, en FIFA rannsakaði málið og lét skoða bein hans til þess að komast að niðurstöðu um aldur hans og virðist hann því vera 21 árs samkvæmt niðurstöðum þeirra.

Hann samdi við Newcastle United í dag, en félagið borgaði 8,5 milljónir punda fyrir hann og undirritaði hann þá fimm ára samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert