Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segist ekkert vita hvar Argentínumaðurinn Ángel Di Maria sé niðurkominn en forráðamenn Paris SG segja að stutt sé í að leikmaðurinn gangi í raðir félagsins.
Van Gaal var spurður út í Di Maria eftir ósigur United gegn Paris SG í úrslitaleik Alþjóða knattspyrnumótsins í Chicago í nótt.
„Ég veit ekki hvar hann hann. Þið getið spurt um hann í hverri viku en ég get ekki svarað spurningunni,“ sagði Van Gaal en Di Maria fékk lengra frí vegna þátttöku sinnar með argentínska landsliðinu í S-Ameríkukeppninni í sumar en til stóð að Argentínumaðurinn kæmi samt til móts við United-liðið í lok Bandaríkjaferðarinnar.
„Manchester United og Paris SG eru tvö stór félög og samningaviðræður geta verið erfiðar en það er stutt í að þetta mál klárist,“ sagði Laurent Blanc þjálfari Paris SG.