Benteke verður í níunni

Christian Benteke.
Christian Benteke. Ljósmynd/liverpoolfc.com

Liverpool hefur staðfest að framherjinn Christian Benteke sem kom til félagsins frá Aston Villa á dögunum verður í treyju með númerinu 9 á bakinu.

Benteke skrifaði undir samning við Liverpool í síðustu viku en þá lá ekki ljóst fyrir hvaða númer hann fengi úthlutað. Rickie Lambert var í níunni á síðustu leiktíð en nú þegar hann er á förum til WBA fær Benteke níuna.

Benteke var í treyju með númerinu 20 á bakinu þau þrjú tímabil sem hann lék með Aston Villa en sú treyja er upptekinn fyrir Adam Lallana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert