Chelsea að tryggja sér Baba

Jose Mourinho, stjóri Chelsea.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea. AFP

Englandsmeistarar Chelsea eru við það að tryggja sér varnarmanninn unga Abdul Rahman Baba sem leikur með þýska liðinu Augsburg.

Að því er fram kemur í þýska blaðinu Bild hefur Chelsea samþykkt að greiða 25 milljónir evra fyrir leikmanninn sem er 21 árs gamall og er landsliðsmaður Gana.

Mörg af stóru liðunum í Evrópu hafa sýnt Baba mikinn áhuga, þar á meðal Juventus og Paris SG, en allt stefnir í hann sé á leið til Englandsmeistaranna. Baba leikur í stöðu vinstri bakvarðar en aðeins einn vinstri bakvörður er nú í herbúðum Chelsea, Cesar Azpilicueta, eftir að Luiz Felipe fór aftur til liðs við Atletíco Madrid.

Augsburg keypti Baba frá þýska liðinu Greuther Furth í fyrra fyrir aðeins 3,5 milljónir evra svo hann hefur margfaldast í verði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert