Rooney spilar með Everton á ný

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United mun klæðast Everton-treyjunni í fyrsta sinn í 11 ár á sunnudaginn.

Rooney mun spila með sínu gamla liði í ágóðaleik fyrir Duncan Ferguson en Rooney og Ferguson spiluðu saman með Everton áður en Rooney fór til Manchester United árið 2004. Þeir munu endurnýja kynnin á sunnudaginn þegar Everton spilar á móti spænska liðinu Villareal.

Ferguson, sem nú er í þjálfarateymi Everton, vonast til að Rooney fái góðar móttökur á Goodison Park en Ferguson var átrúnargoð Rooney þegar hann var unglingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert