Terry hefði aldrei gert þetta

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea skaut létt á sinn fyrrum markvörð, Petr Cech sem fór til Arsenal í sumar en þessi lið mætast einmitt í leiknum um Samfélagsskjöldinn kl. 14 á sunnudag.

Mourinho var ekki ánægður með það að Cech skyldi vilja fara í sumar en leyfði honum á endanum að fara leiðar sinnar þar sem Cech hafði verið dyggur þjónn þeirra bláklæddu í áratug og staðið sig afar vel.

„Þetta er ákvörðun sem, t.d. John Terry myndi aldrei taka, vegna þess að það væri ómögulegt fyrir hann að spila gegn öðru ensku úrvalsdeildarliði. Það truflaði Petr ekki neitt," sagði Mourinho.

Viðtalið í heild, sem Shaka Hislop, fyrrum markvörður Newcastle tók fyrir ESPN má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert