Kvennalið Chelsea í knattspyrnu fagnaði í dag sigri í ensku FA-bikarkeppninni í knattspyrnu þegar liðið hafði betur gegn Notts County í úrslitaleik á Wembley, 1:0.
Það var Ji So-Yeon sem kom Chelsea yfir á 37. mínútu og reyndist það eina mark leiksins, sem fór fram fyrir framan rúmlega 30 þúsund áhorfendur.
Þetta var fyrsti sigur Chelsea í keppninni og var félagið um leið það sautjánda í röðinni sem hampar titlinum.