Fer Bale til United?

Gareth Bale.
Gareth Bale. AFP

Ef marka frá fréttir enska netmiðla í kvöld er Manchester United ekki búið að gefa upp alla von um að krækja í Walesverjann Gareth Bele sem er á mála Real Madrid.

Louis van Gaal, stjóri United, vill fá stórstjörnu til liðs við sig áður en flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi og nú þegar það liggur nokkuð ljóst fyrir að Ángel Di Maria er á leið til Paris SG hefur Van Gaal beint sjónum sínum að Bale.

Í dag opinberaði Manchester United nýja búninga í tilefni þess að félagið gerði risasamning við Adidas sem tryggir United 750 milljónir punda næstu tíu árin. Þar með hefur opnast möguleiki fyrir félagið að bjóða í Bale en verðmiðinn á honum er 86 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert