Leicester kaupir leikmann fyrir metfé

Charles Aranguiz stendur nú í samningaviðræðum við Leicester City.
Charles Aranguiz stendur nú í samningaviðræðum við Leicester City. AFP

Leicester City hefur fallist á það að greiða Internacional 10,5 milljónir punda fyrir síleska miðvallarleikmann Charles Aranguiz. Leicester og Charles Aranguiz eru þessa dagana að ganga frá samningum kaup og kjör. 

Charles Aranguiz er ætlað að leysa af hólmi Esteban Cambiasso inni á miðsvæðinu hjá Leicester, en Cambiasso ákvað að framlengja ekki samning sinn við Refina. 

Charles Aranguiz var í lykilhlutverki hjá Síle þegar liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði Suður-Ameríkubikarinn. Charles Aranguiz hefur leikið 40 landleiki fyrir Síle og skorað í þeim leikjum 6 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert