Liverpool bætir við sig Brassa

Allan er hér fyrir miðju með samlöndum sínum Coutinho og …
Allan er hér fyrir miðju með samlöndum sínum Coutinho og Firmino. Ljósmynd / opinber twitter síða Liverpool

Liverpool bætti í dag við flóruna af brasilísku leikmönnum þegar félagið gekk frá kaupum á hinum unga og efnilega Allan frá Internacional. Kaupverðið á þessum 18 ára gamla leikmanni er 500.000 þúsund pund. Allan hefur æft með Liverpool undanfarna daga og forráðamenn Liverpool hafa nú tryggt sér þjónustu leikmannsins. 

Allan er áttundi leikmaðurinn sem Liverpool kaupir í sumar og fjórði Brasilíumaðurinn í leikmannahópi Liverpool. 

Fyrir eru Lucas Leiva, Philippe Coutinho og Roberto Firmino sem gekk til liðs við Liverpool fyrr í sumar frá Hoffenheim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert