Liverpool fagnaði sigri í Helsinki

Philippe Coutinho skoraði annað mark Liverpool.
Philippe Coutinho skoraði annað mark Liverpool. AFP

Liverpool fagnaði 2:0 sigri gegn finnska liðinu HJK í Helsinki í kvöld en þetta var síðasti undirbúningsleikur Liverpool fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst í næstu viku.

Divock Origi skoraði fyrra mark Liverpool á 73. mínútu eftir flottan undirbúning frá Jordan Ibe og Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho bætti við öðru marki fimm mínútum síðar. Eftir stutta hornspyrnu fékk Coutinho boltann frá Milner og skoraði með góðu skoti.

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Clyne, Skrtel, Lovren, Gomez, Henderson, Milner, Coutinho, Ibe, Lallana, Ings.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert