Vill fá Balotelli til Katar

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Gianfranco Zola þjálfari Al-Arabi í Katar vill fá ítalska sóknarmanninn Mario Balotelli til liðs við sig.

Balotelli er á mála hjá Liverpool er ljóst er að hann er ekki inni í myndinni hjá stjóranum Brendan Rodgers sem vill að Balotelli leiti sér að nýju liði til að fara til.

Balotelli, sem gekk til liðs við Liverpool fyrir 16 milljónir punda í fyrra, hefur verið orðaður við ítölsku liðin Sampdoria og Bologna. Nú vill Zola fá vandræðagemlinginn til Katar en Zola reyndi að fá Balotelli til liðs við þegar hann var við stjórnvölinn hjá West Ham árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert