Wenger vann Mourinho loksins

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vann langþráðan sigur á Mourinho í …
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vann langþráðan sigur á Mourinho í dag. AFP

Arsenal sigraði Chelsea í dag með einu marki gegn engu í leiknum um Samfélagsskjöldinn sem fram fór á Wembley í dag. Það var Alex Oxlade-Chamberlain sem skoraði mark Arsenal um miðjan fyrri hálfleikinn. Chamberlain lék þá auðveldlega á Cesar Azpiculeta og skoraði með fallegu skoti upp í samskeytin.

Arsene Wenger vann í dag langþráðan sigur á Jose Mourinho en það hafði honum ekki tekist í 13 tilraunum.

Arsenal hefur leikið vel á undirbúningstímabilinu og hefur unnið þrjá bikara. Arsenal vann æfingamót í Asíu, bar svo sigur úr býtum á Emirates Cup og nú Samfélagsskjöldinn.

Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi. Chelsea hefur titilvörn sína með því að mæta Gylfa Sigurðssyni og félögum hans í Swansea á Stamford Bridge. Arsenal mætir hins vegar West Ham á Emirates Stadium.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert