Rafael seldur til Frakklands

Rafael hefur verið seldur til Frakklands.
Rafael hefur verið seldur til Frakklands. AFP

Brasilíski bakvörðurinn Rafael da Silva er orðinn leikmaður Lyon í Frakklandi, en hann er keyptur frá Manchester United.

Kaupverðið er um tvær milljónir punda og skrifaði Rafael undir fjögura ára samning við franska félagið. Hann er 25 ára gamall og kom til United árið 2008 frá Fluminese í heimalandinu. Hann lék alls 109 leiki fyrir United og skoraði í þeim fimm mörk. Hann á að baki tvo landsleiki fyrir Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert