Ángel Di María hefur látið í ljós ánægju sína að vera við það að yfirgefa Manchester United, tólf mánuðum eftir að hann var keyptur þangað á tæplega 60 milljónir punda frá Real Madrid.
Hann er nú í Katar þar sem fram fer læknisskoðun fyrir skipti hans til PSG í Frakklandi, en talið er að hann fljúgi til Parísar á morgun og að franska félagið greiði rúmar 44 milljónir punda fyrir kappann. Talið er að fjölskyldu hans hafi ekki liðið vel á Englandi og að það hafi haft mikið að segja.
„Ég er mjög ánægður að vera að fara og PSG lagði mikið á sig til að fá mig. Ég legg mig alltaf fram og vonandi mun ég vinna til margra titla með félaginu,“ sagði Di María, sem skoraði fjögur mörk á síðasta tímabili. United er sagt ætla að fá Pedro frá Barcelona til að fylla skarð Argentínumannsins.