Vill að Liverpool bjóði Balotelli tíu ára samning

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Gary Neville, fyrrum fyrirliði Manchester United, skaut aðeins á erkifjendurna í Liverpool á dögunum og var spurður út í stöðu Mario Balotelli í Bítlaborginni.

Neville var spurður hvort Liverpool ætti að gefa þeim ítalska annað tímabil til þess að sanna sig eftir erfitt fyrsta tímabil á Englandi, og það stóð ekki  á svari hjá Neville.

„Ekki spurning, þeir ættu að gefa honum tíu ára samning að auki,“ sagði hann og glotti, en talið er að Balotelli eigi enga framtíð hjá Liverpool eftir að hafa einungis skorað eitt mark í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert