Jonny Evans semur við West Brom

Jonny Evans fagnar marki.
Jonny Evans fagnar marki. AFP

Norður-írski miðvörðurinn Jonny Evans er genginn til liðs við West Bromwich Albion frá Manchester United á fjögurra ára samning.

Evans, sem er 27 ára gamall, verður liðsfélagi Darren Fletcher á ný en þeir voru samherjar í Manchester United í fjölmörg ár. 

„Jonny mun koma með mikla reynslu og verður mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Ég hef fylgst með honum í svolítinn tíma,“ sagði Tony Pulis, þjálfari WBA, en Evans lék 198 leiki fyrir Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert