Kevin de Bruyne orðinn leikmaður Man. City

Kevin de Bruyne er nýjasti leikmaður Manchester City.
Kevin de Bruyne er nýjasti leikmaður Manchester City. AFP

Belgíski landsliðsmaðurinn Kevin de Bruyne hefur skrifað undir samning við Manchester City, en þessi félagaskipti hafa legið í loftinu undanfarna daga. Þetta kemur fram á opinberri twitter síðu Manchester City.

Kevin de Bruyne gengur til liðs við Manchester City frá Wolfsburg, en kaupverðið er talið vera 50,8 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Raheem Sterling var því aðeins í skamma stund efstur á þeim lista.

Kevin de Bruyne er fimmti leikmaðurinn sem aðallið Manchester City kaupir í sumar, en áður höfðu Raheem Sterling, Fabian Delph, Patrick Roberts og Nicolas Otamendi gengið til liðs við félagið. 

Kevin de Bruyne var efstur á lista yfir flestar stoðsedningar í stærstu fimm deildum Evrópu á síðastliðnu tímabili með 20 stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert