Serbneski vængmaðurinn Lazar Markovic sem er á mála hjá Liverpool hefur verið lánaður til Fenerbache. Markovic mun leika með Fenerbache út yfirstandandi tímabil og tyrkneska liðið greiðir Liverpool óuppgefna upphæð fyrir lánssamninginn.
Markovic sem gekk til liðs við Liverpool frá Benfica síðasta sumar og kostaði Rauða herinn 20 milljónir punda náði ekki að heilla Brendan Rodgers á síðastliðnu keppnistímabili og er þessi lánssamningur endanleg staðfesting þess.
Markovic lék einungis 19 leiki með Liverpool á síðasta tímabili og skoraði í þeim leikjum tvö mörk.