Welbeck úr leik næstu mánuðina

Danny Welbeck.
Danny Welbeck. AFP

Arsenal verður án enska framherjans Danny Welbeck næstu mánuðina eftir að hann gekkst undir aðgerð á vinstra hné.

Welbeck hefur ekki spilað leik síðan 26. apríl þegar Arsenal mætti Chelsea á Emirates-vellinum. Vonast var til þess að hann næði að jafna sig af meiðslunum án þess að fara í aðgerð, en raunin varð önnur.

Frá þessu er greint á heimasíðu Arsenal en þar segir að Welbeck verði frá í nokkra mánuði, án þess að það sé tilgreint nánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert