Klopp þegar búinn að semja við Liverpool?

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Eins og kunnugt er var Brendan Rodgers rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool í dag og samkvæmt erlendum miðlum er þegar búið að ganga frá því að Jürgen Klopp verði eftirmaður hans á Anfield.

Klopp er sagður skrifa undir þriggja ára samning við félagið ásamt aðstoðarmanninum Zeljko Buvac frá Bosníu, en það eru þarlendir miðlar sem greina frá þessu í kvöld. Klopp hefur verið án starfs eftir að hafa hætt með Dortmund, en Þjóðverjinn hefur lengi verið orðaður við starfið á Anfield.

Næsti leikur Liverpool er þann 17. október gegn Tottenham og eru forráðamenn félagsins sagðir vilja opinbera nýjan knattspyrnustjóra sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert