Var brugðið í beinni vegna brottreksturs Rodgers - myndskeið

Jamie Carragher.
Jamie Carragher. AFP

Þrátt fyrir að það hafi legið í loftinu í dágóðan tíma var ýmsum stuðningsmönnum Liverpool nokkuð brugðið þegar norðurírska knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers var sagt upp hjá félaginu fyrr í dag.

Sparkspekingarnir hjá Sky, þeir Thierry Henry og Jamie Carragher, fengu að heyra tíðindin í beinni útsendingu og stóð engan veginn á sama eins og myndbrotið að neðan sýnir þar sem Henry grípur meðal annars um lærið á Carragher sem starir sjálfur þrumu lostinn út í loftið.

Frétt mbl.is: Brendan Rodgers rekinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert