Segir viðræður við Klopp ganga vel

Jürgen Klopp náði góðum árangri með Dortmund í Þýskalandi.
Jürgen Klopp náði góðum árangri með Dortmund í Þýskalandi. AFP

Ben Smith, fréttamaður BBC, fullyrðir á Twitter-síðu sinni nú í kvöld að viðræður á milli Liverpool og knattspyrnustjórans Jürgen Klopp gangi vel.

Að sögn Smiths er Klopp fyrsti kostur hjá Liverpool eftir að ákveðið var að láta Brendan Rodgers fara. Hann segir að viðræður gangi vel og að hugsanlega verði búið að ganga frá ráðningu Klopps áður en vikan er úti.

Vegna landsleikjahlés er næsti leikur Liverpool ekki fyrr en 17. október, þegar liðið sækir Tottenham heim.

Ítalinn Carlo Ancelotti hefur einnig verið orðaður við Liverpool og Smith segir að þessi afar sigursæli stjóri sé staddur í London, þar sem Liverpool er með skrifstofu. Klopp sé hins vegar maðurinn sem eigendur Liverpool vilji helst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert