„Er búið að opinbera þetta?“

Jurgen Klopp mun að öllum líkindum taka við Liverpool á …
Jurgen Klopp mun að öllum líkindum taka við Liverpool á næstu dögum. AFP

Mats Hummels, fyrirliði Borussia Dortmund í Þýskalandi, vildi lítið sem ekkert tjá sig um Jürgen Klopp er hann mætti á blaðamannafund með þýska landsliðinu í dag.

Hummels gekk til liðs við Dortmund á láni frá Bayern München í janúar árið 2008 áður en hann var keyptur um sumarið sama ár. Hummels blómstraði undir stjórn Klopp og reyndist liðinu afar mikilvægur en það komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu og vann þá þýsku deildina með hann innanborðs.

Klopp hættir með Dortmund eftir síðasta tímabil en hann þykir nú líklegastur til þess að taka við enska úrvalsdeildarfélaginu, Liverpool, eftir að Brendan Rodgers var sagt upp störfum.

Hummels vildi þó lítið tjá sig um málið er hann var spurður út í Klopp á blaðamannafundi þýska landsliðsins í dag.

„Er búið að opinbera þetta? Nei, allt í lagi þá vil ég ekki tjá mig um þetta að svo stöddu,“ sagði Hummels.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert