Klopp lofar Liverpool í topp fjögur

Jürgen Klopp tekur við Liverpool.
Jürgen Klopp tekur við Liverpool. AFP

Stuðningsmenn Liverpool bíða með öndina í hálsinum en allt stefnir í að Þjóðverjinn Jürgen Klopp verði ráðinn knattspyrnustjóri félagsins í dag.

Enska blaðið Mirror greinir frá því að Klopp hafi tjáð eigendum Liverpool að hann lofi þeim að liðið endi á meðal fjögurra efstu liða á leiktíðinni með smá liðsstyrk í janúarglugganum.

Klopp, sem er 48 ára gamall, mun gera þriggja ára samning við Liverpool sem er sem stendur í 10. sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert