Klopp mættur upp á flugvöll

Jürgen Klopp er á leið til Liverpool.
Jürgen Klopp er á leið til Liverpool. AFP

Jürgen Klopp verður að öllum líkindum kynntur sem nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool í dag en þýski þjálfarinn er mættur á flugvöllinn í Dortmund og er á leið til Liverpool-borgar.

Liverpool lét Brendan Rodgers taka poka sinn eftir 1:1 jafntefli liðsins gegn Everton síðustu helgi og hófust viðræður við nokkra þjálfara í kjölfarið.

Klopp virtist vera efstur á lista en viðræður við hann hafa gengið afar vel. Ensku miðlarnir greindu frá því í dag að allt væri klappað og klárt fyrir komu hans og ætti hann í raun bara eftir að skrifa undir.

Mynd birtist af honum í dag á leið upp á flugvöllinn í Dortmund í Þýskalandi en útlit er fyrir að hann verði kynntur seinni partinn í dag eða í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert