„Klopp mun ná því besta út úr hópnum“

Dietmar Hamann.
Dietmar Hamann. AFP

Þjóðverjinn Dietmar Hamann fyrrverandi leikmaður Liverpool segir að Jürgen Klopp muni ná góðum árangri með þann leikmannahóp sem félagið hefur yfir að ráða.

„Hann vill örugglega fá ein til tvo leikmenn í lykilstöðurnar. Þegar horft er til Dortmund-liðsins sem hann var með þá náði hann því besta út úr leikmönnunum og ég er sannfærður um að hann mun gera það hjá Liverpool,“ segir Hamann.

Fastlega er búist við því að Klopp verði ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool í dag og skrifi undir þriggja ára samning við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert