Klopp samdi við Liverpool

Jürgen Klopp við undrskriftina í kvöld.
Jürgen Klopp við undrskriftina í kvöld. Heimasíða Liverpool

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool staðfesti í kvöld ráðningu á þýska þjálfaranum, Jürgen Klopp, en hann gerði þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Brendan Rodgers var látinn taka poka sinn á sunnudag eftir 1:1 jafntefli gegn Everton en hann hafði stýrt liðinu í þrjú ár.

Eigendur Liverpool fóru strax í það að leita að eftirmanni Rodgers en viðræður hófust við Klopp fyrir nokkrum dögum.

Klopp skrifaði formlega undir þriggja ára samning við Liverpool í kvöld en hann verður kynntur fyrir fjölmiðlum á morgun.

Klopp þjálfaði síðast Borussia Dortmund í Þýskalandi en hann hætti eftir síðustu leiktíð. Hann vann þýsku deildina og bikarinn með liðinu auk þess sem hann kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á tíma sínum þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert