Fyrstu leikir Liverpool undir stjórn Klopp

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Fyrsti leikurinn þar  sem Jürgen Klopp stýrir Liverpool í verður á laugardaginn eftir viku þegar liðið sækir Tottenham heim í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrsti leikur Liverpool á heimavelli undir stjórn Þjóðverjans verður á móti Rubin Kazan í Evrópudeildinni hinn 22. þessa mánaðar en þess má geta að Klopp er annar Þjóðverjinn sem stýrir liði í ensku úrvalsdeildinni. Sá fyrsti var Felix Magath sem var við stjórnvölinn hjá Fulham frá febrúar til nóvember 2014.

Fyrstu leikir Liverpool undir stjórn Klopp eru:

17. október Tottenham (ú)
22. október Rubin Kazan (h)
25. október Southampton (h)
28. október Bournemouth (h)
31. október Chelsea (ú)
5. nóvember Rubin Kazan (ú)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert