„Konan kallar mig Ringo Klopp“ (myndskeið)

Klopp er mættur til Englands.
Klopp er mættur til Englands. AFP

Eftirherma Jür­gen Klopp, nýráðins knattspyrnustjóra Liverpool, birtist í óvenjulegu viðtali þar sem hann fer yfir nýja starfið og ýmislegt tengt því. Samkvæmt því lærði Klopp ensku á tveimur dögum og kallar sig Ringo Klopp eftir að hann flutti til Liverpool.

Mikil spenna ríkir í Liverpool en stuðningsmenn liðsins geta varla beðið eftir því að sjá liðið undir stjórn Klopp. Fyrsti leikur Liverpool með Klopp í brúnni er 17. október þegar liðið sækir Tottenham heim í ensku úrvalsdeildinni.

Myndbandið skemmtilega, sem birtist á facebook síðunni Klopp for Kop, má sjá hér fyrir neðan:

Klopp first lierpoo intrview..FUNNY

Klopps first Liverpool Interview..Funny! haha..Join us at Klopp for Kop (y)

Posted by Klopp for Kop on Thursday, October 8, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert