Vilja losa sig við Rojo

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United.
Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United. AFP

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Manchester United hafi í hyggu að losa sig við argentínska varnarmanninn Marcos Rojo og fá annan leikmann í stað hans.

Leikmaðurinn sem United hefur augastað á er hollenski landsliðsmaðurinn Bruno Martins Indi sem leikur með portúgalska liðinu Sporting. Hann er 23 ára gamall.

Rojo hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Louis van Gaal knattspyrnustjóra liðsins og hefur hann aðeins byrjað inná í einum leik á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert