„Er besti leikmaður heims í dag“

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. AFP

Steven Gerrard fyrrverandi fyrirliði Liverpool segir að fyrrum liðsfélagi sinn úr Liverpool sé um þessar mundir besti leikmaður heims í dag.

Sá sem Gerrard á við er Luis Suárez framherji Barcelona en Úrúgvæinn hefur farið á kostum í framlínu Katalóníuliðsins á tímabilinu.

„Ég held að í því formi sem Suárez er núna sé hann sá besti. Hann og Neymar eru kannski á pari en mörkin sem Suárez skorar eru í heimsklassa. Suárez stendur Ronaldo fremri. Það er enginn vafi. Hann er hreint ótrúlegur,“ sagði Gerrard við BT Sport.

Suárez skoraði tvö mörk í 6:1 stórsigri Barcelona gegn Roma í Meistaradeildinni í gærkvöld og hefur þar með skorað 5 mörk í Meistaradeildinni og hann er búinn að skora 11 mörk í spænsku 1. deildinni á tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert