Klopp yfirheyrður af níu ára strák

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Níu ára strákur, Isaac að nafni, tók líklega áhugaverðasta viðtalið sem Jürgen Klopp, nýráðinn knattspyrnustjóri Liverpool, hefur farið í eftir að hann flutti til Englands fyrir nokkrum  vikum.

Einkaviðtal stráksins við Klopp má finna á vef Liverpool og þar spyr hann Þjóðverjann um allt mögulegt, sína helstu kosti og galla, uppáhalds tónlistina, ástríðu hans fyrir fótboltanum, ásamt því að kanna hversu mikið af mállýsku Liverpool-borgar Klopp hafi náð að tileinka sér á þessum skamma tíma.

Sjá viðtalið í heild hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert